|
Könnun
Væri heimurinn betri ef það væru ekki til trúarbrögð?
Já
6 atkvæði
Nei
6 atkvæði
Ég heiti Jónsi og hef ekki skoðanir á hlutum sem eru flóknari en orðið "banani"
6 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 18
|
28.07.2008 01:23:31 / Ottó
Eftirfarandi mynd er af Óla Jóni bróður mínum. Ég fann hana á flakkaranum og bara varð að setja hana hér inn, setti hana reyndar á facebook líka.
Þarna er Óli í 8 bekk held ég, og þessi mynd prýddi forsíðu Íslensku ritgerðar sem hann skrifaði um bókina Litbrigði Jarðarinnar. Bara snilld.
»
25.07.2008 01:24:12 / Ottó
Edda og ég ákváðum að fara í IKEA í gær. Við vorum búin að heyra að það væru hinir og þessir hlutir á tilboði og ætluðum að athuga málið. Við förum inn, löbbum þennan típíska hring sem þeir láta alla labba, bara fylgja örvunum og þú kemst út á endanum.
 Þarna voru margir hlutir á útsölu, en ekkert svo sem sem okkur "vantaði" sérstaklega. Svo komum við að hundadeildinni og ákveðum að taka tvö teppi fyrir Bubbu, annað í bílinn og hitt í sófann. Það var svona grind á gólfinu með þessum teppum og stórt skilti á grindinni 295 kr. Flott mál.
Löbbum svo áfram og tökum ekkert annað. Þá var komið að því að borga svo við förum í röð við kassana. Afgreiðslumaðurinn brosti sínu breiðasta, skannaði teppin inn og ég rétti kortið. Um leið og hann rennir kortinu í gegn segir hann. 900 kr. Haa, neii það getur ekki verið, segi ég. Það stendur á skiltinu þar sem þessi teppi voru að þau kostuðu 295 kr. Hann brosti sínu breiðasta, tók kvittunina og sýndi mér hvað ég hefði miskilið.
Sko, bláa teppið er á tilboði, grænbláa teppið er nývara. Svo ætlaði hann bara að snúa sér við og afgreiða næsta. Ég æstist. "Hvaða bull er þetta?, þetta eru NÁKVÆMLEGA eins teppi, nema mismunadi á litinn, þau lágu saman í sömu grindinni með sama verðið. Þú auðvitað borgar mér mismuninn."
Á þessum tímapunkti var ég orðinn að leiðinlega kúnnanum sem er að kvarta, og annar strákur á öðrum kassa kallar að ég eigi að fara í skilavörur. Afgreiðslumaðurinn minn brosti enþá sínu breiðasta og var sko ekki á því að hjálpa mér frekar. Ég hrifsaði kvittunina og rauk að skiladeild. Edda elti mig og var pínu skömmustuleg fyrir mína hönd.

Ég ýti á takka á tæki sem er á veggnum og fæ miða sem á stendur númer hvað ég er í afgreiðslunni. Nr 96. Ég lít á skjáinin, í afgreiðslu núna. Nr 88.
Það sauð á mér, ég ætlaði ekki að gefa mig, IKEA skal ekki stela af mér 300 krónum svona léttilega. Ég varð reiðari og reiðari með hverri mínútunni, mér varð litið til afgreiðslukassana og þar var "vinur" minn við kassann sig og enginn fyrir hann að afgreiða, hann var bara að spjalla við annan starfsmann. Ég hefði betur átt að rjúka þangað og gefa honum einn á hann. En gerði það ekki.
Loksins var röðin komin að mér. Nr 96 gjösvovel. Þarna stóð indæl stúlka og brosti til mín. Ég útskýrði fyrir henni málavöxtu og hún endurtók það sama og "vinur" minn hafði gert. Sko, þetta bláa er á tilboði en hitt er nývara. Hún gæti tekið þetta dýra, gefið mér inneignarnótu, ég þyrfti svo að fara aftur inn í búðina, (hringinn góða) ná í annað blátt teppi og borga með inneignarnótunni. Gleymdu því, sagði ég. og varð orðinn reiður. "Ég skila þessu bansetta teppi og þú borgar mér það til baka, í pening." Hún gerði það loksins og ég rauk í burtu. Alveg brjálaður. En þetta er ekki búið
Því það er svona lítill sölubás, kiösk, sem selur pylsur og ís og svoleiðis. Og við ákveðum að fá okkur eitthvað smotterí, Edda vildi ís og ég pylsu. Og það var röð og röð og röð, og loksins komið að mér. Tveir afgreiðslumenn stóðu fyrir aftan afgreiðsluborðið og brostu sínu blíðasta, annar tók við pöntunum og hinn gerði ís og pylsur. "Góðan daginn, ég ætla að fá einn ís (50 kr) svona pylsa og gos tilboð (170 kr) og svo eina pylsu (115 kr)" Já ekkert fleira ok, það gera xxx kr. Ég borgaði með klinkinu sem við fengum fyrir teppið. Hinn strákurinn gerði ís handa eddu og tvær pylsur, spyr svo hinn hvort ég hefði verið með eitt eða tvö glös. og ég og hinn svörum á sama tíma, ég segi "eitt glas" hinn segir "tvö glös". ég horfi hissa á strákinn og spyr, borgaði ég fyrir TVÖ gos? Hann horfir til baka brosandi sínu breiðasta og kinkar kolli, afgreiðir svo næsta. Ég var svo reiður að ég kom ekki upp orði, hrifsaði bara glösin af stráknum og rauk í burtu. Fylltum á glösin og byrjuðum að labba að bílnum. Á hálfri leið tek ég eftir því að ég var ekki með neina sósu á pylsunum mínum. ég átti víst að setja það á sjálfur. Oh,,, jæja fer inn aftur, set sósur á pylsurnar og labba út í bíl.
Fatta þá að ég hafði lagt frá mér gosglasið inni þegar ég setti sósur á, og ekki nennti ég fyrir mitt litla líf að fara enn og aftur þarna inn. Þannig að ég fékk sopa hjá Eddu minni. Hjúkkett að ég keypti tvö glös.
------------------------------
Þetta var sem sagt gremjubloggið mitt. En að öðru skemtilegra. En það eru myndir af Bubbu okkar, sem við erum búin að eiga í núna hálfan mánuð. Hún Bubba Pála er bolabítur, alveg að verða 11 vikna.



 

 Eins og sést á síðustu myndinni semur þeim Ýlu mjög vel og ekkert vesen búið að vera. Allar myndir, nema síðasta eru frá Guðbjörgu vinkonu okkar, fleiri myndir frá henni á www.gudbjorg.is
Komið í bili. Ottó
»
19.07.2008 12:17:07 / Ottó
Ég er búinn að setja á youtube atriði sem urðu eftir á klippiborðinu við gerð Þorrablótsatriðis 2007. http://www.youtube.com/watch?v=02zaGU6eEdE
Hér er svo Þorrablótsatriði 2007 part1 http://www.youtube.com/watch?v=Q13YJkQWTQopart2 http://www.youtube.com/watch?v=eEy9lQEKBoM Og Þorrablótsatriði 2008 http://www.youtube.com/watch?v=QLLN7qdod2E Þorrablótsatriði 2009 er svo í fullri vinnslu, búið að taka upp 4 atriði og allt að gerast.
»
19.05.2008 23:21:02 / Ottó
»
06.05.2008 12:49:30 / Ottó
Ég var að skoða mbl.is rétt í þessu, og rak augun í frétt sem vakti mig til umhugsunar. Þetta er kanski ekki svo skrítið þar sem mbl.is er jú fréttavefur. En í fréttinni stóð meðal annars þetta. "Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 3,03% það sem af er degi í Kauphöll Íslands. Stendur vísitalan nú í 4.853,52 stigum. " Og ég komst að því að þetta segir mér ekki neitt um ekki neitt. Ég bara hér með viðurkenni að ég veit ekki hvað orðið Úrvalsvísitala þýðir, né hvað það stendur fyrir. Aldrei lærði ég svo mikið sem einn bókstaf um þetta í skóla, hvorki grunnskóla né framhaldsskóla. Er ætlast til þess að meðal Jói þessa lands viti bara hvað Úrvalsvísitala er?
 Þetta er mynd af úrvalsvísitölu, kom upp ef maður googlaði orðinu.
Það eru til fleiri orð í íslenskunni sem maður heyrir næstum á hverjum degi en veit eigi svo gjörla hvað þýða. Stýrivextir er til dæmis orð sem maður heyrir oft en veit ekki nákvæmlega hvað þýðir. "Seðlabanki Íslands hækkaði í morgun stýrivexti um hálft prósentustig" Á eftir svona setningu ætti að koma "með öðrum orðum...." eða "Sem þýðir á mannamáli ...."
 Dabbi kóngur ætti kanski að geta útskýrt þetta fyrir mér. Er einhver með númerið hjá honum? ----------------------- Annað.

Óli Jón bróðir minn kom til Reykjavíkur um daginn, hann þurfti eitt sinn að taka strætó til að komast leiðar sinnar. Hann fer upp í vagninn, bíður eftir að fólkið á undan borgar eða sýnir kort og svo er röðin komin að honum. Óli tekur upp pening og réttir bílstjóranum. Bílstjórinn horfir á Óla á móti og lesa mátti úr augum hans að honum fannst ekki mikið til Óla koma. Óli horfir á móti og skildi ekki hvað var málið. Var hann að gera eitthvað vitlaust? Nei, hann var í réttum vagni, Hann var snyrtilegur til fara, ófullur, í fötum, ekki með ís og ekki með hund með sér. Hvað var hann að gera vitlaust? Á endanum gafst bílstjórinn upp, tók við 1000 króna seðlinum sem Óli vildi borga með og var heillengi að veiða upp klink úr greiðsluboxinu til að borga Óla til baka.
 Leiðrétting. Stjórnanda síðunnar barst eftirfarandi leiðrétting. Endirinn er ekki svona. Óli Jón kom inn í strætóinn, tróð 1000 kallinum ofan í klinkboxið og beið svo eftir að fá til baka. Strætóbílstjórinn horfði á hann eins og hann væri fáviti, andvarpaði djúpt og teigði sig í skrúfujárn. Það tók hátt í 5 minútur að skrúfa kassann í sundur og ná aftur í 1000 kallinn. Óli varð að gjöra svo vel að fara út úr vagninum, finna sjoppu til að skipta seðlinum og bíða svo í hálftíma eftir næsta strætó.
Þessi litla saga vekur upp smá pælingar. Hvernig stendur á því að ef þú ætlar að ferðast með strætó verður þú annaðhvort að vera með þar til gert strætókort eða vera með nákvæmlega réttu upphæðina í klinki? Afhverju tekur strætó ekki við kortum? Til eru mjög þægilegir kortaposar sem fólk getur meiri segja rennt sjálft í gegn. Bílstjórinn þyrfti ekkert að gera sjálfur. Upp kæmi miði úr prentaranum sem segir að þú hafir borgað og sá miði gæti líka virkað sem skiptimiði.
Svo er annað sem tengist strætó og hundahaldi en það er annar pistill útaf fyrir sig.
»
16.04.2008 22:03:55 / Ottó
Þar sem Ómar er búinn að vera með grobbbloggið sitt svona lengi án þess að vera búinn að skrifa eitthvað annað þá ákvað ég að gera smá grobbblogg líka. Þetta er sem sagt mont yfir nýja "fjölskyldumeðlimi" okkar hér á Njálsgötunni. Nei Edda er ekki ólétt. Þetta er hún Fea Farrow okkar. og er 3 mánaða.

Og já, þeim Ýlu kemur bara ágætlega saman.

Rakst á þetta gamla blogg og ákvað að birta það með kommentum. Bara af því ég hef hvort sem er ekkert meira að skrifa um í bili. ------------------------------------------------------------------------------------------- Sækjast sér um líkir.
 
Hiro úr Heroes Marija trukkalessa úr Eurovision Þessi tvö eru nokkuð lík. En ég veit um einn í viðbót sem er með þetta sama andlit. 
Óli Jón Gunnarsson Óli bróðir minn virðist eiga sér marga tvífara, þessi fannst t.d. í vetur. 
Merkilegt alveg hreint. Ég og Óli erum ekkert líkir lengur. Þar sem mér svipar ekki til hinna tvífarana hans Óla. 
Skrollið upp fyrir samanburð. En Ég á eina mynd sem er búin að bíða mjög lengi eftir að komast á netið. Jónsi og Gæji fengu leYfi til að nota hana en nýttu sér það aldrei. so here it is. Það er enginn tvífari við þetta andlit. 
»
24.03.2008 11:10:08 / Ottó
Skemtilegt þetta orð, dúttl. "ég er bara að dúttla" Væri gaman ef einhver (Baldur Gumm) gæti komið með uppruna þess okkur til fróðleiks. Það hafa allir lent í því að neyðast til að hlægja að einhverju sem annar segir bara af því það átti að vera fyndið og það yrði vandræðalegt ef maður myndi ekki hlægja. Hvernig væri að fara í smá herferð gegn slæmum húmor. Hætta að hlægja þegar viðmælandi manns kemur með einhvern hræðilegan brandara, segja bara. "Ertu ekki að grínast, ætlastu í alvöru til þess að ég hlægi að þessu sem þú varst að segja." Það væri gaman að brjóta upp óskrifaðar reglur hversdagsins. Ef manni klæjar á almannafæri þá klórar maður sér, hvort sem það er í klofinu, rassinum eða annarstaðar. eða þegar nærbuxurnar fara aðeins of langt upp í boruna, þá bara nær maður í þær aftur. Undir þetta flokkast líka að prumpa og ropa. Í Ítalíu er bannað að klóra sér í pungnum, ólöglegt.
Í öðrum löndum er til siðs að bjóða gömlum konum og óléttum konum sætið sitt í strætó. Það er ekki hérlendis, en það er ekkert skrítið að við höfum ekki tileinkað okkur það. Strætó er aldrei fullur!!!!!!!!
Ég er að vinna með manni frá Ítalíu og hann sér því samfélagið með öðrum augum en við sem þekkjum varla annað. Hann hefur verið að benda mér á hina og þessa hluti sem eru öðruvísi en gengur og gerist. T.d. Hvað er málið með Moggann, að sunnudagsmogginn er kominn seinnipartinn á laugardögum.
Endilega kíkið á videoin sem ég hef sett á netið www.youtube.com/ottogunn
Ottzenegger út.
»
07.03.2008 00:40:01 / Ottó
»
21.02.2008 18:33:54 / Ottó
Þorrablótsatriði 2008 Kópaskeri eru komið á youtube. www.youtube.com/ottogunn http://www.youtube.com/watch?v=QLLN7qdod2E----------------------------------------------------------------------------------------------------------- Mér er það minnistætt þegar ég gékk í Grunnskólann á Kópaskeri þegar við krakkarnir hlupum út í símaklefa hjá pósthúsinu og gerðum símaat. Þá var það þannig að það var hægt að hringja en rétt eftir að það var svarað skellti síminn á ef það kom enginn peningur. Þetta þótti rosalega gaman og fyndið og var mikið stundað. Best var þegar síminn bilaði og það þurfti enga peninga til að geta hringt. Þetta datt mér í hug í gær þegar það hringdi síminn hjá mér. Á skjánum stóð private number, svo ekki gat ég vitað hver það var sem var að hringja. Mér er bölvanlega við að svara svona hringingum en lét mig hafa það. Á hinum enda línunar var pínu skræk rödd sem sagði "já góðan daginn, ég er að hringja frá hommaráði Reykjavíkur og við ætlum að bjóða þér á Jumper". Haa.??? hvað segiru, hommaráði Reykjavíkur, svaraði ég. Já og við ætlum að bjóða þér á Jumper, bjóða mér á hvað Jumper, í bíó. Já ok. Hvað segiru, Hommaráð, þekkiru þá Sigga, hann er einmitt í Hommaráðinu, sagði ég. það kom smá þögn í símann en svo jánkaði aðilinn að hann þekkti umræddan Sigga. Þá fór ég að hlægja, sagði að þetta væri nokkuð gott, til hamingju og vertu sæll. Já takk, bless. Svo heyrðist bara pínu kæfður hlátur áður en hann lagði á. Hommaráð Reykjavíkur, Er það nýjasti meirihlutinn?
»
03.02.2008 13:12:25 / Ottó
Ég nenni ekki að blogga þegar mér dettur ekki neitt í hug. Ég er búinn að setja inn slatta af videoum inn á youtube.com www.youtube.com/ottogunn Ef þið klikkið á þennan link getið þið komist í þau. Mun fleiri klippur væntanlegar svo fylgist með. Ýla er komin í fyrisætubransann og þessi mynd og væntanlega fleiri munu birtast í tímaritinu Dýrin mín fljótlega. 
mynd Guðbjörg Gaman að því. Sérstaklega þegar....
»
12.01.2008 13:09:37 / Ottó
Jæja. Fjöruverðir (the icelandic baywatch) eru komnir á youtube.com http://www.youtube.com/watch?v=-qlE9MIeDAU Gaman gaman. Ef að einhver á myndböndin í tölvunni sinni sem voru á netinu fyrir svolitlu má hann endilega láta mig vita.
»
07.01.2008 20:22:42 / Ottó

Kæri stöðumælavörður.
Mig langar að byrja á því að hrósa þér fyrir þá
miklu þrautsegju og starfsgleði sem þú sýnir í starfi þínu. Það eru
ekki margir stöðumælaverðir sem myndu leggja það á sig að labba
alla leið í Njálsgötuna á rölti sínu um miðbæinn. Sérstaklega þar
sem enginn stöðumælir er í götunni og ekkert gjald þarf að borga
fyrir að leggja í stæðin.
Það væri mér sönn ánægja að bjóða þér næst þegar
þú átt leið fram hjá húsi mínu á Njálsgötunni í smá kaffisopa og
jafn vel fá eitthvað með ðí.
Við gætum átt gott spjall saman um þá staðreynd
að bílastæði á Njálsgötunni eru engan vegin í samræmi við fjölda
íbúa sem eiga bíl. En ef þú getur ekki séð þér fært að koma á
vinnutíma, þú ert jú tímabundinn og hlítur að fá prósentur fyrir
hvern bíl sem þú finnur athugaverðan í lagningu, þá mátt þú alveg
koma bara eftir vinnu. Ef þú verður keyrandi þá hef ég heyrt af því
að það er stundum laust stæði upp í Grafarvogi.
Þú röltir bara þaðan.
»
02.12.2007 15:58:30 / Ottó
Þessi pistill er einungis gerður í hefndarskyni og sem svar okkar Every Hole Brothers við pistli sem birtist 13.11.2007 Kl 22:12:54 á bloggsíðu Jóns, www.blog.central.is/johnson Í umræddum pistli Jóns komu fram ýmsar viðkvæmar upplýsingar um okkur bræður og þv í sjáum við okkur ekki annað fært en að svara í sömu mint. Hann Jón (sem hér eftir verður kallaður Jónsi) varð "frægur" er hann tók þátt í keppninni Herra Norðurland 2006. Á Þessum tíma þótti Jónsi bera af öðrum karlmönnum. Ef það væri mynd af honum í orðabók þá væri myndin við orð eins og karlmennska, vöðvabyggingarfullkomnum og kvennsemi. Þessi mynd sýnir Jónsa í blóma lífsins. 
Hann prufaði að vinna með þroskaheftum einstaklingum á sambýli. Það virkaði vel til að byrja með, Jónsi fann sig vel þarna, en hann neyddist til að segja upp fljótlega vegna sjúklegrar minnimáttarkenndar er hann þurfti að baða þá. Þessi mynd sýnir Jónsa við matarborðið með einum heimilismannanna. 
EFtir sambýlið lá leiðin einungis niður á við, og það hratt. Hann byrjaði að misnota fíkniefni, byrjaði á "sakleysislegum" efnum eins og sniffa skóáburð og nota endaþamstíla, en á endanum var hann kominn á kaf í hörðu efnin. Til að fjármagna neysluna varð hann að finna vinnu sem þénaði mikinn pening. Og komst hann í starf sem strippari á lokuðum leðurhommaklúbb sem starfræktur er á Akureyri. 


Eins og sjá má á síðustu myndinni er Jónsi í annarlegu ástandi og erfitt að sjá að þetta sé sami maðurinn og varð í 3 sæti ekki fyrir svo löngu. Og ekki var hann enn kominn á rock bottom. 
Á Þessum tímapunkti var Jónsi farinn að berjast við erfiðan sjúkdóm er nefnist samkynhneigð en hann smitaðist af honum á einu af strippkvöldunum. Hann lifði í afneitun og plataði sjálfan sig og aðra með því að deita og láta sjá sig opinbera með ungri stúlku. Seinna kom í ljós að þessi stúlka er þekkt fyrir að vera "fegurðarsamkeppnagrúpppía" og er í dag að deita sjálfan Herra Ísland 2007. 
Sjúkdómurinn (sem er orðið sem Jónsi kallar kynhneigð sína) byrjaði að taka völdin og var Jónsi alræmdur á Akureyri fyrir að reyna að tæla aðra menn. Og skipti þá engu máli hvort þeir voru skyldir honum eður ei. 
 


En þá kom örlagadagurinn í lífi Jónsa. Hann fann loksins akkurat réttu týpuna sem hann hafði ómeðvitað verið að leitað alla æfi. Ástin í lífi hans heitir Vin Diesel (alnafni leikarans) og leiðir þeirra lágu saman eitt laugardagskvöld í einkapartí á vegum mikilvægramanna í undirheimum Akureyrar. Hann Jónsi okkar var sem sagt eftir allt saman fyrir bleksvarta myndarlega karlmenn. 
Vin hjálpaði Jónsa mjög mikið. Í fyrsta skipti uppgvötaði Jónsi hvað orðið ást þýðir. Samband þeirra var Jónsa alveg rosalega mikilvægt þar sem Vin aðstoðaði hann mikið í baráttunni við fíkniefnadjöfulinn. Talið er líklegt að "meðalið" sem Jónsi fékk reglulega hafi hjálpað mikið. Næstu tvær myndir eru úr einkasafni þeirra félaga. 

Í ágúst á þessu ári skildu leiðir þeirra Jónsa og Vins. Jónsi færði sig um set, flutti til Belgíu og er kominn í drauma "jobbið" sitt sem leikari í listrænni kvikmyndagerð eins og hann kallar það. 
Every Hole Brothers out. Búja.
»
27.11.2007 14:49:57 / Ottó
Við Edda fórum í bíó í gær. Beowulf varð fyrir valinu að þessu sinni og óhætt að segja að við (ég) værum spennt. Það er nefnilega mikið búið að tala um hvað það væri geðveikt þrívíddar graffíkur eitthvað alla myndina. 
Við stóðum í röðinni í Kringlubíóinu og ég tipplaði á tánum. Hlakkaði pínu að sjá þessa mynd. Svo var röðin komin að okkur. Stelpan bakvið glerið var með talstöðina aðeins of hátt stillta og maður dauðhrökk við að heyra góðan daginn. "dg..n ... aginn". Jú jú, við ætluðum að fá 2 miðan á Bjólf og ég rétti henni 5000 kall. "Það gera 2200 krónur" sagði hún um leið og hún prentaði miðana og rétti mér þá ásamt afganginum. Haaaa???? Hvað ertu að segja? bíddu bíddu. "jú það kostar 1100 á myndina af því að hún er 3D. þrídí" Svo rétti hún okkur þrívíddargleraugu og afgreiddi næsta. Ég verð að viðurkenna að spennan minnkaði aðeins við þetta. Að borga helvítis 300 kall auka fyrir andskotans forljót þrívíddargleraugu er alveg gjörsamlega út í hött. En á myndina fórum við, og var það hin afbragðs skemmtun. Þrívíddargraffíkin og allt þetta sem hafði verið lofað í fjölmiðlum var alveg hárrétt og stórgott. Meiri segja miklu meira en það. Eftir myndina stóðum við upp og löbbuðum að útgöngudyrunum, og þá rak ég augun í kassa sem stóð á gólfinu við hliðina á dyrunum. Á honum var skilti sem stóð "vinsamlegast setjið notuður þrívíddargleraugu í kassann." Þeir ætlast sem sagt til þess að við skilum þeim aftur gleraugunum sem við keyptum á 300 kall svo þeir geti selt þau aftur á sama verði. Gleraugun mín tók ég með mér heim, þau fóru beinustu leið ofan í skúffu og munu aldrei verða notuð aftur. Gaman að því, sérstaklega þegar...
»
20.11.2007 23:52:35 / Ottó
Á flakki mínu á síðunni www.youtube.com fann ég þennan snilling. 
Hann heitir Lasse Gjertsen og er frá Noregi. Hann lítur kanski ekki gáfulega út en er samt snillingur. hér eru tvö video sem eru bara möst see. http://www.youtube.com/watch?v=JzqumbhfxRo http://www.youtube.com/watch?v=o9698TqtY4A&feature=related Einnig mæli ég með því að þið sláið inn í leit "human tetris" á youtube og skoðið mestu snilld sem hefur komið fram í japönsku sjónvarpi. http://www.youtube.com/watch?v=BCuWeXZi05w&feature=related http://www.youtube.com/watch?v=crfrKqFp0Zg http://www.youtube.com/watch?v=aZpD0btOZx8&feature=related http://www.youtube.com/watch?v=kHmvkRoEowc&feature=related Gaman að því, sérstaklega þegar...
»
Síður: 1 2 3 ... 14
|
Heimsóknir
Í dag: 6 Alls: 140641
|