Ég var að skoða mbl.is rétt í þessu, og rak augun í frétt sem vakti mig til umhugsunar. Þetta er kanski ekki svo skrítið þar sem mbl.is er jú fréttavefur. En í fréttinni stóð meðal annars þetta.
"Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 3,03% það sem af er degi í Kauphöll Íslands. Stendur vísitalan nú í 4.853,52 stigum. "
Og ég komst að því að þetta segir mér ekki neitt um ekki neitt. Ég bara hér með viðurkenni að ég veit ekki hvað orðið Úrvalsvísitala þýðir, né hvað það stendur fyrir. Aldrei lærði ég svo mikið sem einn bókstaf um þetta í skóla, hvorki grunnskóla né framhaldsskóla. Er ætlast til þess að meðal Jói þessa lands viti bara hvað Úrvalsvísitala er?

Þetta er mynd af úrvalsvísitölu, kom upp ef maður googlaði orðinu.
Það eru til fleiri orð í íslenskunni sem maður heyrir næstum á hverjum degi en veit eigi svo gjörla hvað þýða. Stýrivextir er til dæmis orð sem maður heyrir oft en veit ekki nákvæmlega hvað þýðir. "Seðlabanki Íslands hækkaði í morgun stýrivexti um hálft prósentustig" Á eftir svona setningu ætti að koma "með öðrum orðum...." eða "Sem þýðir á mannamáli ...."

Dabbi kóngur ætti kanski að geta útskýrt þetta fyrir mér. Er einhver með númerið hjá honum?
-----------------------
Annað.

Óli Jón bróðir minn kom til Reykjavíkur um daginn, hann þurfti eitt sinn að taka strætó til að komast leiðar sinnar. Hann fer upp í vagninn, bíður eftir að fólkið á undan borgar eða sýnir kort og svo er röðin komin að honum.
Óli tekur upp pening og réttir bílstjóranum. Bílstjórinn horfir á Óla á móti og lesa mátti úr augum hans að honum fannst ekki mikið til Óla koma. Óli horfir á móti og skildi ekki hvað var málið. Var hann að gera eitthvað vitlaust?
Nei, hann var í réttum vagni, Hann var snyrtilegur til fara, ófullur, í fötum, ekki með ís og ekki með hund með sér. Hvað var hann að gera vitlaust?
Á endanum gafst bílstjórinn upp, tók við 1000 króna seðlinum sem Óli vildi borga með og var heillengi að veiða upp klink úr greiðsluboxinu til að borga Óla til baka.

Leiðrétting.
Stjórnanda síðunnar barst eftirfarandi leiðrétting.
Endirinn er ekki svona. Óli Jón kom inn í strætóinn, tróð 1000 kallinum ofan í klinkboxið og beið svo eftir að fá til baka. Strætóbílstjórinn horfði á hann eins og hann væri fáviti, andvarpaði djúpt og teigði sig í skrúfujárn. Það tók hátt í 5 minútur að skrúfa kassann í sundur og ná aftur í 1000 kallinn. Óli varð að gjöra svo vel að fara út úr vagninum, finna sjoppu til að skipta seðlinum og bíða svo í hálftíma eftir næsta strætó.
Þessi litla saga vekur upp smá pælingar.
Hvernig stendur á því að ef þú ætlar að ferðast með strætó verður þú annaðhvort að vera með þar til gert strætókort eða vera með nákvæmlega réttu upphæðina í klinki?
Afhverju tekur strætó ekki við kortum? Til eru mjög þægilegir kortaposar sem fólk getur meiri segja rennt sjálft í gegn. Bílstjórinn þyrfti ekkert að gera sjálfur. Upp kæmi miði úr prentaranum sem segir að þú hafir borgað og sá miði gæti líka virkað sem skiptimiði.
Svo er annað sem tengist strætó og hundahaldi en það er annar pistill útaf fyrir sig.